Fuglahundadeild mynd 5
Leita á vefsíðu

Póstlisti




Á döfinni

Meira...


Heimsóknir: 7102651

Fréttir


Sýningarþjálfun fimmtudagskvöld kl. 20:00-21:00 í

13.2.2018
Stækka mynd
Fuglahundadeild býður upp á sýningarþjálfun fimmtudagskvöld fram að hundasýningu HRFÍ 2-4. mars n.k. klukkan 20-21. Sýningarþjálfunin verður í gömlu Andvarahöllinni – reiðhöllinni Hattavöllum Garðabæ, en höllin er staðsett á félagssvæði Hestamannafélagsins Spretts.

Við byrjum fimmtudaginn 15. feb. Seinni tvö skiptin verða 22. feb og 1. mars.

Allir hjartanlega velkomnir, skiptið kostar 500 kr. Borð verður því miður ekki á staðnum.

Munum eftir sýningartaum, kúkapoka, góða skapinu og nammi-verðlaunum fyrir hundinn. Gott er að vera búin að viðra hundinn fyrir þjálfun.