Fuglahundadeild mynd 14
Leita á vefsíðu

Póstlisti




Á döfinni

Meira...


Heimsóknir: 7151835

Fréttir


Tilkynning frá Fuglahundadeild varðandi veiðipróf

15.2.2018
Stækka mynd
Óskir hafa komið fram frá félögum innan FHD varðandi breytingar á fyrirkomulagi heiðaprófs sem haldið er dagana 27-29. apríl. Það próf hefur verið haldið fyrir norðan að undanförnu. Sjónamið félaga innan FHD eru skipt varðandi staðsetningu prófa á suðvesturhorninu annars vegar og á norðurlandi hins vegar.

Fuglahundadeild stendur fyrir alls sjö heiðaprófum eftir ísl. reglum fyrir enska-hunda árið 2018. Af þessum sjö prófum eru sex á norðurlandi. Þ.e. 7 í UF, 7 Í OF og 7 í KF árið 2018.

Þar sem ekki náðist samkomulag innan stjórnar FHD um að flytja prófið 27-29. apríl 2018, var tekin sú ákvörðun að flytja prófið sem haldið er 21-23. september 2018 (Áfangafell), á suð-vesturhornið.

Með þessari ákvörðun næst vonandi málamiðlun milli ólíkra sjónarmiða hvað varðar staðsetningu prófa þetta árið.