Fuglahundadeild mynd 2
Leita á vefsíðu

Póstlisti




Á döfinni

Meira...


Heimsóknir: 7102258

Fréttir


Þorrablót FHD 2019

28.1.2019
Stækka mynd
Þorrablót FHD laugardaginn 9. febrúar. Verður það heima hjá Atla og Sigrúnu, að Faxahvarfi 10, Kópavogi og sett kl. 19:00. Hóflegt verð kr. 4000.- á mann og kemur fólk með sína drykki.
Greiða inn á reikning FHD og skrifa nafn/nöfn þeirra sem greitt er fyrir. Reikningsnúmerið er 536-04-761745 og kt: 670309-0290. Síðasti skráningardagur er miðvikudagurinn 6. febrúar.
Sendið staðfestingarpóst á fuglahundadeildfhd@gmail.com
Allir hundaeigendur, áhugafólk um tegundarhóp 7 er hjartanlega velkomið. Góð stemning hefur verið á blótum undanfarin ár og verður engin undantekning á því. Það er skeggrætt um hunda, meginlandshunda- & Áfangafellspróf, menn og málefni, mögulega prófadagskrá 2019, gamla dóma, sýningar og allt hitt. Eigum saman góða og skemmtilega kvöldstund í byrjun starfsárs og komum okkur í gírinn, maður er manns gaman.
Á blótinu eru afhent verðlaun fyrir stigahæstu hunda ársins 2018 á sýningum, sæki- & heiðaprófum.
Kveðja Fuglahundadeild