Fuglahundadeild mynd 8
Leita á vefsíðu

Póstlisti




Á döfinni

Meira...


Heimsóknir: 7103266

Fréttir


Sækipróf FHD 24.-25. júlí Opið fyrir skráningu

6.7.2021
Stækka mynd
Opið fyrir skráningu í sækipróf Fuglahundadeildar sem fram fer dagana 24.-25. júlí n.k. þar sem boðið verður upp á UF, OF og EL báða daga. Þátttakendum stendur til boða að taka þátt í hefðbundnu sækiprófi eða eftir reglum fyrir meginlandshunda.

Dómari er Dag Teien frá Svíþjóð og prófstjórar prófsins eru Atli Ómarsson og Sigrún Hulda Jónsdóttir.

Skráningarfrestur er til miðnættis, sunnudags 18. júlí n.k.

Skráning í prófið fer fram á skrifstofu HRFÍ þar sem hægt er skrá sig símleiðis í s.588 5255 og greiða með símgreiðsluEinnig er hægt að millifæra inn á reikning HRFÍ númer 515-26-707729 Kennitala: 680481-0249. 
Ef greitt er með millifærslu þarf að koma fram nafn hunds í skýringu á færslunni ásamt að senda afrit af greiðslu á hrfi@hrfi.is og fuglahundadeildfhd@gmail.com.

Í tölvupóstinum þarf að koma fram:
Nafn eiganda
Nafn hunds
Ættbókanúmer
Nafn leiðanda
Prófnúmer: 502108
Hvort skráð er í hefðbundið sækipróf eða meginlandshundapróf en fyrir þá sem vilja er hægt að skrá sig annan daginn í hefðbundið próf og hinn daginn í meginlandshundapróf. 

Verðskrá:
Veiðipróf einn dagur  6.400 kr.
Veiðipróf 2ja daga 9.600 kr.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!