Allir hundaeigendur, áhugamenn og konur um tegundarhóp 7 eru hjartanlega velkomnir. Mikil stemming hefur verið á blótum þessum undanfarin ár og verður engin undantekning á því þetta árið, skeggrætt um hunda, menn og málefni, dómgæslur og hvað þetta heitir nú allt saman. Eigum saman góða og skemmtilega kvöldstund í byrjun starfsárs og komum okkur í gírinn, maður er manns gaman.
Leggja má inn á reikning FHD og skrifa jafnframt nafn/nöfn þeirra sem greitt er fyrir. En reikningsnúmerið er 536-04-761745 og kt: 670309-0290. Síðasti skráningardagur er miðvikudagurinn 31. janúar.
Sendið staðfestingarpóst fuglahundadeildfhd@gmail.com
Á blótinu verða afhent glæsileg verðlaun fyrir stigahæstu hunda ársins 2017 á sýningum, sækiprófum, heiðaprófum og fyrir stigahæsta hundinn á fyrsta meginlandshundaprófinu sem haldið hefur verið á Íslandi. Stigahæstu hundar verða kynntir fljótlega.
Kveðja Fuglahundadeild