Laugardaginn 19. október verður Meginlandshundapróf FHD sett stundvíslega kl. 9.00 í Rockwill Keflavik. Frá Reykjavík er u.þ.b. 45 mínútna akstur á prófstað. Nánari staðsetningu má sjá á mynd hér til hægri. Minnum þátttakendur á að koma með rjúpu fyrir sókn. FHD áréttar að öllum er velkomið að ganga með í prófinu og óskar þátttakendum góðs gengis.