Ársfundur Fuglahundadeildar

Stækka mynd

Þar sem gefið hefur verið aðeins eftir í fjöldatakmörkunum er ekki seinna vænna en að boða til ársfundar deildarinnar.

Ársfundur Fuglahundadeildar verður haldinn á skrifstofu HRFÍ föstudaginn 28. maí kl. 19:30.

Dagskrá:

Ársskýrsla
Ársreikningur
Heiðrun stigahæstu hunda ársins 2020
Kosning tengiliða ef þurfa þykir; Bracco Italiano, Breton, Gordon Setter, Korthals Griffon, Pointer, Pudelpointer, Vizsla og Weimaraner.
Kosning stjórnar (þrjú laus sæti í stjórn)
Önnur mál

Hlökkum til að sjá sem flesta.

Kosningarétt og kjörgengi á ársfundum deilda hafa þeir, sem eru skráðir eigendur hunda eða hafa verið skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild í tvö ár og skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn. Hjón hafa kosningarétt og kjörgegni hvort heldur þau greiða félagsgjald sem hjón eða í sitthvoru lagi sé annað þeirra skráð fyrir hundi í deildinni.