Framlengdur frestur, Tore Chr Roed

Stækka mynd

Virkilega mikill áhugi virðist vera fyrir prófinu um helgina. Við fengum skráningarlistan í gær og það eru 16 hundar skráðir. Vegna þessa mikla áhuga fórum við í það í gær að reyna finna erlendan dómar til að dæma  með Einari. Tore Chr. Roed er tilbúin að koma og mun dæma prófið með Einari um helgina.


Vegna þess fengum við leyfi hjá HRFÍ til að opna fyrir skráninguna til kl 12 á morgun. Þeir sem voru ekki vissir endilega skráið ykkur sem fyrst.