Veiðiprófi lokið

Stækka mynd

Fyrsta veiðiprófi ársins er nú lokið.  Prófið var haldið á neðanverðri Mosfellsheiði í blíðskaparveðri og var dæmt af Pétri Alan Guðmundssyni.  Slangur var af rjúpu á svæðinu og fengu flest allir hundar tækifæri til þess að sýna fuglavinnu.  Hundarnir nýttu sín tækifæri með misgóðum árangri.  Einungis einn hundur náði einkunn í dag en það var enski setinn Elding sem hlaut 3. einkunn og var valinn besti hundur prófs. 
Fuglahundadeild óskar Steina og Eldingu til hamingju með árangurinn.