Nýtt sýningasvæði í febrúar

Stækka mynd
Klettagarðar 6

Tekið af www.hrfi.is

Nýtt sýningasvæði í febrúar

Klettagörðum 6, 104 Reykjavík

Það er okkur mikil ánægja að tilkynna að alþjóðlega hundasýning Hundaræktarfélags Íslands 25.-26. febrúar verður haldin í nýju húsnæði að Klettagörðum 6, 104 Reykjavík.

Nýja sýningsvæðið er allt opið og býður upp á að sölu- og kynningabásar verða inni á sjálfu sýningasvæðinu, sýnendur geta verið með búr, snyrtiborð, stóla ofl. við sýningahringi og áhorfendum er leyfilegt að koma með sína eigin stóla og sitja við sýningahringi. Næg bílastæði eru á svæðinu. Nánari framkvæmd og útfærsla er í vinnslu.