Kaldaprófið hófst í gær 13. apríl. Prófað var í unghunda og opnum flokki í frábæru veðri. Freðmýrar norðursins ollu nokkrum vonbrigðum þetta árið, þær geymdu minna af rjúpu en oft áður. Þó var það þannig að flestir hundar höfðu tækifæri á fugli sem þeir nýttu misvel. Fremstir í flokki þennan daginn voru Snjófjalla Hroki sem gerði sér lítið fyrir og landaði 2. einkunn í unghundaflokki og Esjugrundar Spyrna toppaði daginn með því að landa verðskuldaðri 1. einkunn í opnum flokki. Annar urðu úrslit þannig:
Opinn flokkur
Esjugrundar Spyrna 1. einkunn
Vallholts Vaka 2. einkunn
Zetu Jökla 2. einkunn
Hrímþoku Francini 3. einkunn
Unghundaflokkur:
Snjófjalla Hroki 2. einkunn
Í dag 14. apríl þá telst það helst til tíðinda að margrómuð Sally Vanity hefur að öllum líkindum landað 1. einkunn enn eina ferðina og Bylur fylgir þar á eftir með einkunn í opnum flokki. Enginn ásættanleg fuglavinna náðist í unghundaflokki er þetta er skrifað en beðið eftir úrskurði dómara.