Tveir hundar fengu einkunn í opnum flokki í dag á fyrsta degi Irsk setter prófsins.
Heiðnabergs Gáta von Greif - snögghærður vorsteh fékk 2. einkunn og var valin besti hundur í opnum flokki
Vatnsenda Kjarval - pointer fékk 2. einkunn
Enginn unghundanna fékk einkunn í dag.
Dómarar voru Jan-Olov Daniels og Egill Bergmann
Það rigndi frá morgni til kvölds en mannskapurinn var samt sem áður hress og hlakkar til morgundagsins enda veðurspáin góð.
Fuglahundadeild óskar þátttakendum í prófinu á morgun góðs gengis.