Nú er öðrum degi Írsk setter prófsins lokið. Hundarnir voru prófaðir í kringum Borgarhóla og í Skálafelli. Veðrið var með ágætum og var slangur af fugli. Eftirtaldir hundar fengu einkunn:
Unghundaflokkur:
IS Gaggajunis 2. einkunn og besti hundur í UF.
ES Snjófjalla Hroki 2. einkunn
W Huldu bell von Trubon(Frida von Bismarck) 3. einkunn
Opinn flokkur:
P Vatnsenda Kara 1. einkunn og besti hundur í OF
ES Elding 2. einkunn
ES Kaldalóns Doppa 2. einkunn
V Esjugrundar Spyrna 2. einkunn
Aðrir hundar fengu ekki einkunn. Fuglahundadeild óskar öllum þeim sem fengu einkunn til hamingju með árangurinn. Á morgun verður svo haldinn keppnisflokkur.