Kæru meðlimir Fuglahundadeildar nú er komið að uppáhalds iðju stjórnar að safna saman farandbikörum. það er venja að heiðra stigahæðstu hunda deildarinnar á þorrablóti deildarinnar sem verður haldið á morgun, föstudaginn 13. febrúar. Okkur þætti afar vænt um að fá bikarana sem fyrst, við munum afhenda þá sem við getum á morgun en rest stefnum við á að afhenda á ársfundi deildarinnar þann 18. febrúar. Það væri vel þegið ef þið sem eruð með bikar/a mynduð setja ykkur í samband við Örnu eða Hauk til að skila þeim. Þeir sem eru með bikar/a og náið ekki að skila þeim fyrir þorrablótið mættuð endilega senda línu á Örnu eða Hauk og láta mynd af gripnum fylgja. Verið er að vinna í að búa til skjal sem heldur utan um þessa gripi sem fara stundum á flakk, ganga stundum ekki út og þá ruglast utanumhaldið.
Bestu kveðjur
Stjórn FHD