Áfangafellspróf FHD 2026 Úrslit í KF

Stækka mynd

6 hundar störtuðu í Keppnisflokki í morgun í blíðskapar veðri. Vindur var freka hægur og framan af frekar lítið um fugl.


Ein af örðum duttu hundarnir úr keppni en í lokin voru það Mói og Milla sem hlupu saman í síðasta sleppi.
Milla og Pétur höfðu betur og kláruðu því frábæra helgi með því að landa fyrsta sæti í KF.



Fuglahundadeild óskar Pétri og Millu innilega til hamingju með frábæran árangur yfir helgin. 
Jafnfram óskar deildin öllum einkunnarhöfum til hamingju með flottan árangur og skemmtilega helgi.