Árangur meginlandsprófs 10.-11. okt 2026

Stækka mynd

Fuglahundadeild þakkar þátttakendum fyrir sl. helgi. 
Enginn hundur náði einkunn á fyrri degi prófsins, lítill vindur var og því miður náðu hundar ekki að nýta sér þau 
tækifæri sem gáfust þann daginn. Á sunnudegi náðust tvær einkunnir, báðar í Elítuflokki. 
Ljósufjalla Heiða fékk 7 á heiði og 10 fyrir sókn (Besti hundur prófs) og Arkenstone Með Allt á Hreinu (Erró) fékk 
5 fyrir heiði og 5 fyrir sókn. Fuglahundadeild óskar Frikkunum (Friðrik Þór, leiðandi Heiðu og Friðrik G, leiðandi 
Erró) innilega til hamingju með flottan árangur. 


Þátttakendur og leiðendur sem náðu árangri á Sunnudegi ásamt dómaranum Carl-Magnus 


Friðrik Þór og Ljósufjalla Heiða sem varð besti hundur prófs í Elítuflokki ásamt dómaranum Carl-Magnus 


Friðrik G. Griðriksson og Arkenstone Með Allt á Hreinu (Erró) ásamt dómaranum Carl-Magnus.



Fuglahundadeild þakkar styrktaraðilunum Dýrafóður.is og Bendir.is. fyrir stuðninginn á tímabilinu, án þeirra 
væri erfitt að halda flotta viðburði. 

Smellið á myndina til að sjá vöruúrval af hágæða fóðri


Smellið á myndina til að sjá vöruúrval 

Jafnframt óskar Fuglahundadeild öllum veiðimönnum gleðilegs veiðitímabils og von um að allir eigi góðar 
stundir á veiðum með hundum sínum.