Hið árlega Þorrablót Fuglahundadeildar verður haldið laugardagskvöldið 11. febrúar n.k.. Þá mun Arna opna hús sitt fyrir fuglahundafólki og velunnurum. Á boðstólnum verður þorramatur eins og hann gerist bestur. Gert er ráð fyrir að gestir komi með eigin drykkjarföng. Á þorrablótinu verða veitt vegleg verðlaun fyrir bestu myndirnar sem bárust í veiðimyndasamkeppni Fuglahundadeildar frá síðasta veiðitímabili.
Þrátt fyrir óðaverðbólgu, verðtryggingu og fleiri ódáma þá er þáttökugjaldið óbreytt frá fyrra ári eða kr. 2500.- pr. mann og skal panta sem fyrst hjá Örnu í e-mail arna_olafs@hotmail.com eða síma: 867-1740. Greiða skal inn á reikning 0130-26-892108 kt. 210889-2219. Staðfesta skal í síðasta lagi miðvikudaginn 8. febrúar. Blótið hefst kl. 20:00 á Sunnubraut 33.
Sjáumst hress.