|
Fyrsta veiðiprófi ársins er nú lokið. Prófið var haldið á neðanverðri Mosfellsheiði í blíðskaparveðri og var dæmt af Pétri Alan Guðmundssyni. Slangur var af rjúpu á svæðinu og fengu flest allir hundar tækifæri til þess að sýna fuglavinnu. Hundarnir nýttu sín tækifæri með misgóðum árangri. Einungis einn hundur náði einkunn í dag en það var enski setinn Elding sem hlaut 3. einkunn og var valinn besti hundur prófs.
Fuglahundadeild óskar Steina og Eldingu til hamingju með árangurinn.
|