Tekið af www.hrfi.is
Nýtt sýningasvæði í febrúar
Klettagörðum 6, 104 Reykjavík
Það er okkur mikil ánægja að tilkynna að alþjóðlega hundasýning
Hundaræktarfélags Íslands 25.-26. febrúar verður haldin í nýju húsnæði
að Klettagörðum 6, 104 Reykjavík.
Nýja sýningsvæðið er allt opið og býður upp á að sölu- og
kynningabásar verða inni á sjálfu sýningasvæðinu, sýnendur geta verið
með búr, snyrtiborð, stóla ofl. við sýningahringi og áhorfendum er
leyfilegt að koma með sína eigin stóla og sitja við sýningahringi. Næg
bílastæði eru á svæðinu. Nánari framkvæmd og útfærsla er í vinnslu.