Veiðipróf og opið hús næstu helgi!
Næstkomandi laugardag verður fyrsta opna hús ársins í Sólheimakoti. Þetta er óvenjuseint í ár en skýrist m.a. af afar leiðinlegu veðri sem hefur verið frá áramótum.
Á laugardaginn verður annað veiðipróf ársins sett kl. 09:00 í kotinu og þegar þátttakendur og dómari verða farnir fáum við hin okkur kaffi og meðlæti og förum síðan upp á heiði og þjálfum.
Góð spá er um helgina, frost og hægur vindur.
Allir nýliðar og áhugasamir um fuglahundasportið eru hjartanlega velkomnir.
Þátttakendur í prófinu eru eftirfarandi:
Unghundaflokkur:
Gagganjunis Von – írskur seti
Heiðnabergs Bylur von Greif – vorsteh snögghærður
Heiðnabergs Gleipnir von Greif – vorsteh snögghærður
Huldu Bell von Trubon (Frida)- Weimaraner
Snjófjalla Hroki – enskur seti
Vatnsenda Kara – pointer
Ekki náðist næg skráning í opinn flokk sem fellur niður.
Prófstjóri í þessu prófi er Egill Bergmann (s:8988621) í forföllum Þorsteins Friðrikssonar og dómari Svafar Ragnarsson sem jafnframt er fulltrúi HRFÍ
Styrktaraðilareru Royal Canin (Dýrheimar) og Kilbeggan’s Whiskey (K.Karlsson) sem veita verðlaun fyrir besta unghundinn. Hundar geta fengið heiðursverðlaun í þessu prófi.
Áhugasömum er bent á að öllum er velkomið að ganga með hluta prófs eða allt en koma þá vel búin enda veður oft risjótt og er þá gott að hafa nesti meðferðis.
Fuglahundadeild óskar þátttakendum góðs gengis í prófinu.
![]()