Fuglahundadeild mynd 5
Leita á vefsíðu

Póstlisti




Á döfinni

Meira...


Heimsóknir: 7139263

Fréttir


Sækipróf FHD 23-24. júli '22 / Skráning hafin

5.7.2022
Stækka mynd
Skráning hafin í sækipróf Fuglahundadeildar sem fram fer dagana 23.-24. júlí n.k. þar sem boðið verður upp á UF, OF og EL báða daga. Þátttakendum stendur til boða að taka þátt í hefðbundnu sækiprófi eða eftir reglum fyrir meginlandshunda.

Dómari Patrik Sjöström frá Svíþjóð.
Prófstjórar Atli Ómarsson og Sigrún Hulda Jónsdóttir.
Fulltrúi HRFÍ Guðni Stefnánsson.
Prófsvæði:  Sólheimakot og nágrenni.

Skráningarfrestur er til miðnættis, fimmtudags 14. júlí n.k. (v/sumarlokun skrifstofu HRFÍ)

Skráning í prófið fer fram á skrifstofu HRFÍ þar sem hægt er skrá sig símleiðis í s.588 5255 og greiða með símgreiðsluEinnig er hægt að millifæra inn á reikning HRFÍ númer 515-26-707729 Kennitala: 680481-0249. 
Ef greitt er með millifærslu þarf að koma fram nafn hunds í skýringu á færslunni ásamt að senda afrit af greiðslu á hrfi@hrfi.is og fuglahundadeildfhd@gmail.com. Greiða þarf þátttökugjald samtímis og skráð er í próf til að skráning verði gild.

Við skráningur þarf að koma fram:
Nafn eiganda
Nafn leiðanda
Nafn hunds
Ættbókanúmer
Prófnúmer: 502208
Taka fram OF eða UF og hvort skráð er í hefðbundið sækipróf eða meginlandshundapróf og hvaða daga. Hægt er að skrá annan daginn í hefðbundið sóknarpróf og hinn daginn í meginlandshundapróf. 

Verðskrá:
Veiðipróf einn dagur  6.800 kr.
Veiðipróf 2ja daga 10.200 kr.

Dómarinn Patrik Sjöström byrjaði að þjálfa og veiða með hundum 1984. Einnig byrjaði að hann taka þátt í sækiprófum með meginlandshunda á sama tíma. Hann hefur ræktað hunda síðan árið 2000, Strýhærða Vorsteh og síðan snögghærða Vorsteh hunda ásamt konu sinni og heitir kennelið Trubadurens Kennel. Patrik hefur verið virkur meðlimur í SVK síðastliðin 32 ár og dómari síðan 2007. Hann hefur dæmt í Svíþjóð, Ítalíu, Hollandi og Belgíu. Patrik hefur oft leitt sænska landsliðið. Patrik hefur komið nokkrum sinnum til Íslands áður til að dæma hjá FHD.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!