Engin einkunn náðist í unghundaflokki en í opnum flokk komu eftirtaldar einkunnir í hús.
Strýhærða Vorsteh tíkin Icel Artemis Ariel og Arnar Már Ellertsson nældu sér í 1. einkunn í alhliðaprófi. En alhliðapróf er bæði heiðarpróf og sækipróf. Glæsilegur árangur.
Bretonarnir Klaki og Dagfinnur 1. einkunn, Tindur og Eydís Elva 2. einkunn, Stefán Karl fékk 2. einkunn á Bliku og 3. einkunn á Byl.
Ensku setarnir Kaldbaks Vaskur og Þorsteinn Friðrikisson fengu í 2. einkunn og Dreki og Hrafn Jóhannsson fengu 2. einkunn.
Strýhærða Vorsteh tíkin Hlaðbrekku Irma og Stefán Marshall fengu 3. einkunn.
Á morgun er síðasti dagur prófsins en þá fer fram keppnisflokkur, verðurspáin er hins vegar afleit, því miður.