Fuglahundadeild mynd 13
Leita á vefsíðu

Póstlisti




Á döfinni

Meira...


Heimsóknir: 7138046

Fréttir


Ársfundur Fuglahundadeildar

10.4.2023
Stækka mynd
Ársfundur Fuglahundadeildar verður haldinn í Sólheimakoti mánudaginn 24. apríl kl. 20:00.

Dagskrá:

Ársskýrsla
Ársreikningur
Heiðrun stigahæstu hunda ársins 2022
Kosning tengiliða ef þurfa þykir; Bracco Italiano, Breton, Gordon Setter, Korthals Griffon, Pointer, Pudelpointer, Vizsla og Weimaraner.
Kosning stjórnar (fjögur laus sæti í stjórn)
Önnur mál

Hlökkum til að sjá sem flesta.

Kosningarétt og kjörgengi á ársfundum deilda hafa þeir, sem eru skráðir eigendur hunda eða hafa verið skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild í tvö ár og skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn. Hjón hafa kosningarétt og kjörgegni hvort heldur þau greiða félagsgjald sem hjón eða í sitthvoru lagi sé annað þeirra skráð fyrir hundi í deildinni.