Ársfundur Fuglahundadeildar var haldinn í húsakynnum HRFÍ, miðvikudaginn 20. mars sl.
Gekk fundurinn ljómandi vel og góð stemming.
Á fundinum var farið í venjuleg aðalfundarstörf, þar sem skýrsla stjórnar var kynnt, farið var yfir ársreikning FHD o.fl.
Tvö sæti voru laus að þessu sinni í stjórn og voru Haukur og Gunnar kjörnir aftur í þau sæti til 2 ára og er því óbrett stjórn næsta árið.
Fundargerð Ársfundar, Skýrsla Stjórnar og reikningar eru núna inni á heimasíðunni.
Stjórnin mun hittast fljótlega og skipta með sér verkum.