Fuglahundadeild mynd 16
Leita á vefsíðu

Póstlisti




Á döfinni

Meira...


Heimsóknir: 7186269

Fréttir


Meginlandshundapróf 20-21. april, skráning hafin

9.4.2024
Stækka mynd
Við viljum árétta að 1.einkunn í opnum flokki á meginlandshundaprófi gefur þátttökurétt í keppnisflokki í norsku og sænsku heiðarprófi.

Styrktaraðilar prófsins eru Platinum á íslandi og Vetplus á íslandi




Platinum.is







Meginlandshunda heiðapróf verður haldið helgina 20. og 21. apríl nk. og mun Patrik Sjöström dæma prófið. Prófað verður í UF, OF og Elítu flokki.

Prófsetning verður kl: 9:00 í Sólheimakoti, nema annað sé tekið fram síðar.

Dómari: Patrik Sjöström

Prófstjóri: Haukur Reynisson
Prófslit verða í Sólheimakoti, nema annað sé tekið fram síðar.

Patrik byrjaði að þjálfa og veiða með hundum 1984. Einnig byrjaði að hann taka þátt í sækiprófum með meginlandshunda á sama tíma. Hann hefur ræktað hunda síðan árið 2000, Strýhærða Vorsteh og síðan snögghærða Vorsteh hunda ásamt konu sinni og heitir kennelið Trubadurens Kennel. Patrik hefur verið virkur meðlimur í SVK rúm þrjátíu ár og dómari síðan 2007. Hann hefur dæmt í Svíþjóð, Ítalíu, Hollandi og Belgíu. Patrik hefur oft leitt sænska landsliðið. Patrik hefur komið nokkuð oft til Íslands til að dæma hjá FHD.

Skráning í prófið fer fram á skrifstofu HRFÍ þar sem hægt er að skrá sig símleiðis s:588 5255 og greiða með símgreiðslu. Einnig er hægt að millifæra inn á reikning HRFÍ númer 515-26-707729 Kennitala: 680481-0249.

Ef greitt er með millifærslu þarf að koma fram nafn hunds í skýringu á færslunni ásamt því að senda afrit af greiðslu á hrfi@hrfi.is og fuglahundadeildfhd@gmail.com.

Í tölvupóstinum þarf að koma fram:

Nafn eiganda

Nafn hunds

Ættbókanúmer

Nafn leiðanda

Prófnúmer:502404

Tilgreina þarf hvaða daga verið er að skrá í próf og í hvaða flokk, UF , Byrjenda flokk, OF eða Elitu.

SKRÁNING ER TIL OG MEÐ 16. APRÍL

Verðskrá veiðiprófs:

Veiðipróf . 1 dagur- 7.630 kr.
Veiðipróf 2ja daga - 11.390 kr.