Kæru deildir, félagsmenn og áhugamenn. Þá líður að ágúst sýningu félagsins og er undirbúningur í fullum gangi. Sýningin verður að þessu sinni sett upp föstudaginn 15.ágúst á Víðistaðatúni og er áætlað að byrja uppsetningu kl. 10. Við gerum okkur grein fyrir því að uppsetning skarast á við vinnutíma hjá mörgum, en við vonumst til að einhverjir vaskir sjálfboðaliðar sjái sér fært um að mæta.
Í boði verður að tjalda fyrir sjálfboðaliða strax að uppsetningu lokinni, fyrir aðra aðila má byrja að tjalda kl 16:00
ATH að þau ykkar sem eru með bás byrjar uppsetning á þeim ekki fyrr en kl. 13:00
Þegar sýningu lýkur á sunnudag bíður okkur skemmtilegt verkefni að taka niður sýninguna og væri frábært að fá sjálfboðaliða til að aðstoða okkur með það. Áætlað er að niðurtaka sé að byrja um 17:30
Annars vonum við að þið njótið sýningarinnar með okkur
Bestu kveðjur starfsfólk skrifstofu