Þá er degi 2 lokið í MH prófi Fuglahundadeildar. Prófið var haldið á Mosfellsheiði fyrir ofan Laxnes í frábæru veðri og nokkuð var af fugli.
Fuglahundadeild óskar þátttakendum innilega til hamingju með árangurinn og þakkar jafnframt
Dýrafóðri/Belcando fyrir stuðninginn.
Í Byrjendaflokki fékk Stormur 7 fyrir heiði og 9 fyrir sókn. Besti hundur dagsins og helgarinnar í Byrjendaflokki.
Ævar, Stormur og Uli
Í opnum flokki var Mýra með 6 á heiði og 10 í sókn og var besti hundur dagsins og helgarinnar í OF.
Atli, Mýra og Uli
Í Elit flokki var Rex með 7 fyrir heiði og 10 fyrir sókn og var valin besti hundur dagsins og besti hundur helgarinnar.
Gunni, Rex og Uli