Fuglahundadeild heldur fyrsta veiðipróf ársins, Ellaprófið, helgina 7.-8. Mars. Prófið er nefnt eftir Erlendi Jónssyni fuglahundadómara.
Prófað verður í unghundaflokki og opnum flokki báða dagana.
Prófið mun fara fram í nágrenni höfuðborgasvæðisins. Upplýsingar um staðsetningu prófsetningar kemur síðar. Styttan „Náttúrubarnið“ verður veitt besta hundi í opnum flokki yfir helgina.

Dómari og fulltrúi HRFÍ: Guðjón S. Arinbjörnsson.
Prófstjóri: Haukur Reynisson/Arna Ólafsdóttir
Ef skráning er mikil mun deildin gera sitt besta til að að flytja inn dómara til þess að allir sem hafa hug á, komist að. Það væri frábært að vita hvort þess þarf með eins góðum fyrirvara og hægt er og þessvegna óskar deildin eftir því að allir sem ætla að skrá sig geri það sem fyrst.
Skráning í prófið:
Á skrifstofu HRFÍ eða símleiðis í 588 5255 þar sem greitt er með því að gefa upp kortanúmer. Einnig er hægt að millifæra á HRFÍ á reikning 515-26-707729, Kennitala 680481-0249 og setja nafn hunds og prófnúmer 502601 í skýringu á færslunni ásamt því að senda afrit greiðslu á hrfi@hrfi.is og fuglahundadeildfhd@gmail.com
Veiðipróf 1 dagur - 8.000 kr.
Veiðipróf 2ja daga - 11.900 kr.
Við skráningu þurfa eftrirfarandi upplýsingar að koma fram:
• Nafn eiganda:
• Nafn hunds:
• Ættbókarnúmer:
• Nafn leiðanda:
• Hvaða flokk er skráð í (UF/OF):
• Hvaða dag/a á að taka þátt:
• Prófnúmer: 502601:
Vinsamlegast athugið að síðasti skráningardagur er til miðnættis miðvikudaginn 25. febrúar.
