Fuglahundadeild HRFÍ heldur Áfangafellsprófið 2026 dagana 18.–20. september á Auðkúluheiði.
Í ár verður prófið sérstaklega skemmtilegt þar sem þátttakendum býðst gisting á Hótel Húnavöllum, sem jafnframt verður miðpunktur prófsins alla helgina.
Dómarar verða
Ørjan Alm og
Steinar Skogli, báðir frá Noregi. Fulltrúi HRFÍ verður Guðjón S.
Arinbjörnsson.
Prófið verður sett alla þrjá dagana kl. 9:00 á Hótel Húnavöllum.
Dagskrá:Föstudagur 18. september
Unghundaflokkur (UF), opinn flokkur (OF) og alhliðaflokkur
Laugardagur 19. september
Unghundaflokkur (UF), opinn flokkur (OF) og alhliðaflokkur.
Sunnudagur 20. september
Keppnisflokkur (KF).
Þeir hundar í UF og OF sem skráðir eru í alhliðapróf og ná einkunn á heiði fara í sækihluta prófsins í beinu framhaldi sama dag.
Vakin er athygli á því að sauðfé gæti verið á prófsvæðinu, en smalað verður á heiðinni dagana fyrir prófið.
Verðlaun:
Dýrafóður.is gefur verðlaun fyrir besta hund í unghunda- og opnum flokki föstudag og laugardag og 1. sæti í keppnisflokki.
Farandbikarinn „Hundurinn“ verður jafnframt veittur þeim hundi sem valinn verður besti hundur
helgarinnar í opnum flokki. Farandbikar er einnig afhent þeim sem nær 1. sæti í keppnisflokki.
Skráning:
Skráning fer fram á skrifstofu HRFÍ eða símleiðis í 588 5255, þar sem hægt er að greiða með korti.
Einnig er hægt að millifæra á HRFÍ:
Reikningur: 515-26-707729
Kennitala: 680481-0249
1 Setja skal nafn hunds og prófnúmer 502608 í skýringu með greiðslu og senda afrit af greiðslukvittun á
hrfi@hrfi.is og
fuglahundadeildfhd@gmail.com.
Prófgjöld
Veiðipróf 1 dagur – 8.000 kr.
Veiðipróf 2ja daga – 11.900 kr.
Veiðipróf 3ja daga – 15.900 kr.
Við skráningu þurfa eftirfarandi upplýsingar að koma fram:
Nafn eiganda
Nafn hunds
Ættbókarnúmer
Nafn leiðanda
Hvaða flokk er skráð í (UF/OF/KF)
Hvaða dag/daga á að taka þátt
Hvort skráð er í alhliðapróf eða eingöngu heiðapróf
Prófnúmer: 502608
Skráningarfrestur er til miðnættis miðvikudaginn 9. september.

Gisting á Hótel Húnavöllum
Boðið verður upp á gistingu á Hótel Húnavöllum frá fimmtudeginum 17. september og alla
prófhelgina á sérstöku verði fyrir þátttakendur:
8.000 kr. á mann á nótt án morgunverðar
11.000 kr. á mann á nótt með morgunverði
Verðið er á mann og er það sama hvort gist er í eins eða tveggja manna herbergi.
Kvöldverður og samvera
Boðið verður upp á sameiginlegt kvöldverðarhlaðborð á Hótel Húnavöllum bæði föstudags- og
laugardagskvöld. Maturinn verður borinn fram á hlaðborði og að sjálfsögðu verður hægt að fá sér
ábót.
Föstudagskvöld 18. september
Lambalæri/lambalærisneiðar í steik með kartöflum og blönduðu steiktu grænmeti.
Laugardagskvöld 19. september
Kjúklingabringa með rjómalöguðu byggi og salati/blönduðu steiktu grænmeti.
Verð kvöldverðar er 7.500 kr. á mann hvort kvöld.
Eftirréttur
Hægt er að bæta við eftirrétti fyrir 1.090 kr. á mann. Eftirréttur er pantaður sérstaklega og þarf að velja
eftirrétt þegar kvöldverðurinn er bókaður.
Eftirréttir í boði eru:
Jarðarberjaostakaka
Súkkulaðikaka með vanilluís og rjóma
Eplakaka með vanilluís og rjóma
Tiramisu
Cream brulee
Hægt er að skrá sig í kvöldverð annað hvort kvöldið eða bæði kvöldin.
Bókun gistingar og matar
Bókanir fyrir gistingu og kvöldverð sendist beint á Hótel Húnavelli á
Við bókun vinsamlegast takið fram:
info@hunavellir.is.
hvaða nætur óskað er eftir gistingu,
hvort óskað er eftir morgunverði,
hvort bóka eigi kvöldverð á föstudegi, laugardegi eða bæði kvöldin,
og hvaða eftirrétt er óskað eftir, ef eftirréttur er valinn.
Við hvetjum þátttakendur til að nýta sér gistingu og kvöldverð á Húnavöllum og eiga góða helgi saman í kringum prófið.
Prófstjórn
Prófstjórar: Kári Georgsson GSM 615-9000 og Haukur Reynisson 896-0685
Netfang:
fuglahundadeildfhd@gmail.com
Við hlökkum til frábærrar helgar!