Fuglahundadeild mynd 2
Leita á vefsíðu

Póstlisti




Á döfinni

Meira...


Heimsóknir: 9327126

Fréttir


Kaldaprófið

14.4.2012
Stækka mynd
Kaldaprófið hófst í gær 13. apríl.  Prófað var í unghunda og opnum flokki í frábæru veðri.  Freðmýrar norðursins ollu nokkrum vonbrigðum þetta árið, þær geymdu minna af rjúpu en oft áður.  Þó var það þannig að flestir hundar höfðu tækifæri á fugli sem þeir nýttu misvel.  Fremstir í flokki þennan daginn voru  Snjófjalla Hroki sem gerði sér lítið fyrir og landaði 2. einkunn í unghundaflokki og Esjugrundar Spyrna toppaði daginn með því að landa verðskuldaðri 1. einkunn í opnum flokki.  Annar urðu úrslit þannig:

Opinn flokkur
Esjugrundar Spyrna 1. einkunn
Vallholts Vaka 2. einkunn
Zetu Jökla 2. einkunn
Hrímþoku Francini 3. einkunn

Unghundaflokkur:
Snjófjalla Hroki  2. einkunn

Í dag 14. apríl þá telst það helst til tíðinda að margrómuð Sally Vanity hefur að öllum líkindum landað 1. einkunn enn eina ferðina og Bylur fylgir þar á eftir með einkunn í opnum flokki.  Enginn ásættanleg fuglavinna náðist í unghundaflokki er þetta er skrifað en beðið eftir úrskurði dómara.