Fuglahundadeild mynd 1
Leita á vefsíðu

Póstlisti




Á döfinni

Meira...


Heimsóknir: 9513424

Fréttir


Skráningarfrestur í Áfangafellspróf FHD

8.9.2026
Stækka mynd
Minnum á skráningarfrest í Áfangafellspróf FHD sem er til miðnættis 9. september.



Dagskrá:

Föstudagur 18. september

Unghundaflokkur (UF), opinn flokkur (OF) og alhliðaflokkur

Laugardagur 19. september

Unghundaflokkur (UF), opinn flokkur (OF) og alhliðaflokkur.

Sunnudagur 20. september

Keppnisflokkur (KF).
Þeir hundar í UF og OF sem skráðir eru í alhliðapróf og ná einkunn á heiði fara í sækihluta prófsins í beinu framhaldi sama dag.

Vakin er athygli á því að sauðfé gæti verið á prófsvæðinu, en smalað verður á heiðinni dagana fyrir prófið.

Verðlaun:

Dýrafóður.is gefur verðlaun fyrir besta hund í unghunda- og opnum flokki föstudag og laugardag og 1. sæti í keppnisflokki.

Farandbikarinn „Hundurinn“ verður jafnframt veittur þeim hundi sem valinn verður besti hundur

helgarinnar í opnum flokki. Farandbikar er einnig afhent þeim sem nær 1. sæti í keppnisflokki.

Skráning:

Skráning fer fram á skrifstofu HRFÍ eða símleiðis í 588 5255, þar sem hægt er að greiða með korti.

Einnig er hægt að millifæra á HRFÍ:

Reikningur: 515-26-707729

Kennitala: 680481-0249

1 Setja skal nafn hunds og prófnúmer 502608 í skýringu með greiðslu og senda afrit af greiðslukvittun á

hrfi@hrfi.is og

fuglahundadeildfhd@gmail.com.

Prófgjöld



Veiðipróf 1 dagur – 8.000 kr.

Veiðipróf 2ja daga – 11.900 kr.

Veiðipróf 3ja daga – 15.900 kr.

Við skráningu þurfa eftirfarandi upplýsingar að koma fram:



Nafn eiganda

Nafn hunds

Ættbókarnúmer

Nafn leiðanda

Hvaða flokk er skráð í (UF/OF/KF)

Hvaða dag/daga á að taka þátt

Hvort skráð er í alhliðapróf eða eingöngu heiðapróf

Prófnúmer: 502608


Skráningarfrestur er til miðnættis miðvikudaginn 9. september.

Nánari upplýsingar um próf og gistingu má finna hér.